Bæjarstjórn samþykkti rétt í þessu að hverfa frá hugmyndum um fjölgun íbúða á nýlega breyttu skipulagi við Hrauntungu.
Er það gert eftir hörð viðbrögð íbúa sem töldu samkomulag sem gert hafði verið um uppbyggingu á lóðinni væri illilega svikið með fjölgun úr 5 í 8 íbúðir.
Á bæjarstjórnarfundinum í dag kom fram að strax hefði verið bent á þetta samkomulag en að fulltrúar í skipulags- og byggingarráði hefðu greinilega ekki lesið öll gögn málsins þegar samþykkt var að fjölga íbúðum á lóðinni á fundi ráðsins 5. maí sl.
Rósa Guðbjartsdóttir sagði ekki ástæðu til að fara með þetta mál lengra ef íbúarnir væru á móti því og búið hefði verið að komast að samkomulagi um uppbyggingu á lóðinni.
Lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fram tillögu um að tillögu skipulags- og byggingarráðs yrði hafnað en hún hafði verið samþykkt af fulltrúum sömu flokka.
Samþykkti bæjarstjórn að hafna tillögu skipulags- og byggingarráðs um fjölgun íbúða á lóðinni.