Hafnarfjarðarbær auglýsir nú til kynningar lýsingu vegna aðalskipulagsbreytinga er nær til íþróttasvæði Hauka við Ásvelli vegna frekari uppbyggingar innan svæðisins.
Verklýsingin aðalskipulagsbreytinga er aðgengileg á hér.
Markmið breytinganna
Megin markið með fyrirhugaðri breytingartillögu er eftirfarandi:
- Efla íþróttasvæðið sem svæði með fjölbreyttari starfsemi
- Tryggja aukið framboð íbúðarhúsnæðis í samræmi við megin markmið húsnæðisstefnu
aðalskipulagsins og fjölbreytt framboð íbúðahúsnæðis og búsetuforma í samræmi við
Húsnæðisáætlun Hafnarfjarðar. - Stuðla að bættri nýtingu svæða innan bæjarins sbr. markmið aðalskipulag um uppbyggingu þéttrar og blandaðrar byggðar.
- Stuðla að þéttingu byggðar í samræmi við greinargerð starfshóps um þéttingu byggðar 2016.
Íbúafundur
Í framhaldi verður haldinn íbúafundur þar sem farið verður yfir breytingartillögurnar og uppbyggingu við Ásvelli. Íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér fyrihugaðar breytingar á skipulagi.
Fundurinn verður haldinn að Norðurhellu 2, fimmtudaginn 29. ágúst kl. 17-18.30.