fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttir45 nemendur brautskráðir frá Flensborgarskólanum

45 nemendur brautskráðir frá Flensborgarskólanum

Hæstu einkunn hlaut Kristófer Jónsson sem er búsettur á Ítalíu

Flensborgarskólanum í Hafnarfirði brautskráði í dag við hátíðlega athöfn 45 nemendur af fjórum námsbrautum; félagsvísinda-, raunvísinda-, viðskipta og hagfræði- og opinni braut. Þrettán þeirra luku einnig námi á íþróttaafrekssviði skólans og einn af nýju tæknisviði skólans.

Útskriftarhópurinn – Aðsend mynd

Dúxinn kláraði stúdentsprófið í fjarnámi frá Ítalíu

Hæstu einkunn hlaut Kristófer Jónsson, með einkunnina 8,63 á stúdentsprófi. Kristófer útskrifaðist af opinni braut, íþróttaafrekssviði með áherslu á viðskiptagreinar og fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í ensku, íslensku og spænsku. Hann hlaut einnig viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar fyrir góðan árangur á stúdentsprófi. Kristófer er atvinnumaður í knattspyrnu og kláraði stúdentsprófið því í fjarnámi frá skólanum. Hann er búsettur sem stendur á Ítalíu þar sem hann leikur með félaginu Triestina í C deildinni.

Faðir Kristófers Jónssonar tók við viðurkenningunum – Aðsend mynd.

Þórarinn Sigurgísli Þórarinsson var með næsthæstu einkunn á stúdentsprófi, af raunvísindabraut. Hann fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í raungreinum á stúdentsprófi frá Rio Tinto á Íslandi.

Þórarinn Sigurgísli Þórarinsson var með næst hæstu einkunn. – Aðsend mynd

Þriðju hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut Róbert Bjarni Gunnarsson Haarde. Þá fékk Tanja Ósk Ólafsdóttir viðurkenningu frá Sorptimistaklúbbi Garðabæjar og Hafnarfjarðar fyrir miklar framfarir í námi á raunvísindabraut.

Erla Sigríður Ragnarsdóttir, skólameistari, og Júlía Jörgensen, aðstoðarskólameistari, fluttu ávörp og fóru yfir liðna önn. Ungmennakórinn Bergmál, samstarfsverkefni Flensborgarskólans og Hafnarfjarðarkirkju, söng jólalög við athöfnina.

Eygló Jónsdóttir, enskukennari, var kvödd eftir farsælan feril við kennslu.

Þorkell hlaut styrk úr fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar

Við athöfnina var veittur styrkur úr fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar en hann hefur verið veittur á hverri útskrift á jólum frá 1992. Þorkell Magnússon, meistaranemi í félagssálfræði við Háskóla Íslands, er styrkþegi sjóðsins að þessu sinni en hann stefnir á að ljúka framhaldsnámi sínu í vor með meistaraverkefni sínu þar sem áhersla er lögð félagslega hegðun og áhrif á neyslu og umhverfismál. Hlaut hann 500.000 kr. styrk.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2