Við flesta skóla bæjarins hafa foreldrar staðið fyrir foreldrarölti sem er heiti á eftirlitsferðum foreldra um skólahverfin eftir að útivistartíma líkur. Oftast er rölt á föstudagskvöldum en líka á öðrum dögum, sérstaklega í tengslum við skemmtanir í bænum.
Farið er af stað eftir að útivistartíma 13-16 ára unglinga líkur á veturna en það er kl. 22. Foreldrafélögin skipuleggja röltið og reynt er að deila því á foreldra úr sem flestum bekkjum og misjafnt er hversu margir ganga hverju sinni.
Fjarðarfréttir slógust í för með foreldrum úr Lækjarskóla sl. miðvikudag og var gengið þar sem búast mætti við að unglingar söfnuðust saman ef þeir væru á ferli. Að sögn Helgu Birnu Gunnarsdóttur, fulltrúa í foreldrarölti Lækjarskóla þá heftur þátttaka verið góð og metþátttaka um daginn þegar 20 foreldrar mættu.
Að þessu sinni var mætt við gamla Lækjarskóla þar sem foreldrarnir fengu gul vesti merkt foreldraröltinu. Sex foreldrar voru mættir og var góð stemmning í hópnum og fólk sammála um að röltið væri einnig gott fyrir tengslamyndun foreldra og líka góð útivist. Strax við skólann mætti hópurinn drengjum sem voru að koma af skólaskemmtun. Voru þeir jákvæðir og spjölluðu við foreldrana og engin vandræði með þá. Í löngu rölti var ekkert athugavert að sjá og hvergi að sjá neina unglinga á ferli nema á leið af skemmtun í Lækjarskóla.
Þar hitti hópurinn tvo fulltrúa frá Götuvitanum sem er forvarnarstarf á vegum Hafnarfjarðarbæjar og er í samstarfi við foreldraröltið. Hlutverk Götuvitans er að sinna leitarstarfi og miðar að því að finna þá unglinga sem teljast til áhættuhóps og aðstoða þá.
Þó þetta kvöld hafi verið rólegt þá er það ekki alltaf svo. Hópurinn úr Lækjarskóla hefur gengið fram á hópa af börnum undir lögaldri og orðið vitni að fíkniefnasölu í hverfinu. Götuvitinn hefur fundið foreldralaus partí þar sem hefur þurft að kalla til lögreglu enda eru hvorki foreldrarnir né starfsfólk Götuvitans með neinar heimildir til aðgerða.
Góð samskipti við unglingana er hins vegar mikilvægur þáttur í röltinu.
Mikilvægust er þó fræðsla til foreldra um mikilvægi þess að fylgjast vel með sínum börnum og læra að þekkja hvenær ástæða er til þess að hafa áhyggjur. Sem betur fer eru lang flestir unglingar til mikillar fyrirmyndar og gott fyrir þá að vita að fulltrúar foreldra hafa af þeim áhyggjur og vilja tryggja öryggi þeirra.
Greinin birtist fyrst í 40. tbl. Fjarðarfrétta, 13. nóvember 2019.