fbpx
Þriðjudagur, desember 17, 2024
target="_blank"
HeimFréttirSkólamálNýr skólameistari Tækniskólans

Nýr skólameistari Tækniskólans

Hildur Ingvarsdóttir tekur við sem skólameistari 1. júní nk.

Stjórn Tækniskólans hefur ráðið Hildi Ingvarsdóttur vélaverkfræðing  skólameistara Tækniskólans frá 1. júní nk.

Hildur lauk prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1999 og M.A.Sc í vélaverkfræði frá Háskólanum í Bresku Kólumbíu í Kanada 2001. Þá hlaut hún réttindi sem framhaldsskólakennari 2003.

Undanfarin 12 ár hefur hún starfað hjá Orkuveitu Reykjavíkur og síðustu fimm ár verið forstöðumaður Viðhaldsþjónustu Veitna. Starfsmenn Viðhaldsþjónustu Veitna, sem eru um 100 talsins og flestir iðnaðarmenn, sinna m.a. viðhaldi og eftirliti veitukerfa og vélbúnaðar fyrirtækisins. Hildur hefur því góða innsýn í störf sem menntað er til í Tækniskólanum og þekkir þarfir atvinnulífsins og kröfur til starfsmenntunar. Hjá Veitum hefur hún tekið ríkan þátt í að efla vinnustaðanám fyrirtækisins auk þess að vinna ötullega að því að efla áhuga unglinga á iðn- og tæknigreinum. Hildur sat í stjórn Tækniskólans frá 2014-2016 sem fulltrúi Samorku og þekkir því til skólans. Áður starfaði Hildur hjá Almennu verkfræðistofunni og sem kennari í Menntaskólanum í Reykjavík.

Hildur Ingvarsdóttir

,,Ég er afskaplega stolt að vera falið þetta hlutverk og hlakka til að kynnast öllu því góða fólki sem gerir skólann að því sem hann er. Ég hef brennandi áhuga á menntamálum og tel að við stöndum á tímum tækifæra en ég skynja verulega vakningu í samfélaginu um mikilvægi iðn- og starfsnáms. Halda þarf áfram hinni góðu vegferð Tækniskólans, að byggja upp og bæta öflugan og fjölbreyttan iðn- og tækniskóla með góðu félagslífi. Skólinn þarf sífellt að sækja fram í tækniþróun og þróun náms til þess að vera samkeppnishæfur og skila öflugu, vel menntuðu fólki út í atvinnulífið.“

Jón B Stefánsson fráfarandi skólameistari snýr sér að öðrum störfum fyrir Tækniskólann eftir að hann lætur af störfum sem skólameistari.

Tækniskólinn er stærsti framhaldskóli landsins með ríflega 2000 nemendur og tæplega 300 starfsmenn í 12 undirskólum. Hann byggir á langri og merkri sögu sem tengist atvinnulífi landsins á marga vegu. Tækniskólinn er einkarekinn skóli í eigu Samtaka iðnaðarins, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur og Samorku. Markmið eigenda rekstrarfélagsins er að skólinn skili góðum starfsmönnum út í atvinnulífið.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2