fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirSnyrtimennska þökkuð með viðurkenningum

Snyrtimennska þökkuð með viðurkenningum

Golfarar og eldri skátar með snyrtilegustu lóðir félagasamtaka í bænum

Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnar­fjarðar veitti annað árið í röð viðurkenningar til lóðarhafa fyrir snyrti­mennsku. Komu þær til eftir að fegrunarnefnd bæjarins hafði verið lögð niður.

Í fyrra voru veittar viðurkenningar fyrir snyrtilegustu og fallegustu garð­ana, snyrtilegustu fjölbýlishúsalóðina, snyrtilegustu fyrirækjalóðirnar og fallegustu götuna.

Í ár voru veittar 9 viðurkenningar en alls bárust 18 ábendingar frá almenningi en kallað hafði verið eftir því m.a. á Facebook.

Helga Ingólfsdóttir og Berglind Guðmundsdóttur afhentu viðurkenningarnar

Viðurkenningarnar voru afhentar hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar í Höfðaskógi og voru verðlaunahafar leystir út með trjáplöntugjöf. Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúi og Berglind Guðmundsdóttir, landslagsarkitekt hjá Hafnarfjarðarbæ afhentu viðurkenning­arnar.

Lindarberg 82

Lindarberg 82

„Mjög fallegur og snyrtilegur garður með gott úrval plantna. Eigandinn hefur þor og seiglu til að prufa nýjar og framandi tegundir og gefst ekki upp þótt móti blási heldur skiptir út og prufar eitthvað nýtt ef annað virkar ekki. Hér eru greinilega eigendur sem hafa áhuga á garðrækt.“ Hildur Ómarsdóttir og Pétur Pétursson tóku við viðurkenningunni.

Lindarberg 82

Fjóluhlíð 12

Fjóluhlíð 12

„Hér eru garðáhugamenn á ferð, nokkur fjölbreytni í gróðri og búin að merkja fjölæringana sérstaklega í garðinum sem var skemmtilegt. Rúm­góðir pallar og snyrtimennska.“ Birna Guð­mundsdóttir og Pétur Pétur Joensen.

Fjóluhlíð 12

Lækjargata 12b

Lækjargata 12b

„Frábær garður og á sannarlega skilið viðurkenningu. Einstaklega fagur með mikla fjölbreytni í gróðri þar sem hugað er að hverju smáatriði. Frábært hvernig Hamarinn fær notið sín í þessum garði. Hér er mikill gróður­áhugi á ferð ásamt góðu við­haldi. Þessi er sá flottasti!“ Eigendur eru Ida Sveinsdóttir og Ríkharður Kristjánsson. Íris dóttir þeirra tók við.

Lækjargata 12b

Öldugata 6

Öldugata 6

Mjög skemmtilegur bakgarður, ævintýragarður með allskonar dúlleríi haganlega fyrir komið. Útigrill, heitur pottur, rósabeð og skemmtilegt port þegar að húsi er komið þar sem maður getur fengið sér sæti og notið garðsins ef íbúar eru lengi að koma til dyra eða ekki heima.“ Egill Strange og Svein­björg Bergsdóttir.

Öldugata 6

Hafravellir 5

Hafravellir 5

„Mjög snyrtilegur og fallegur garður á Völlunum þar sem hraunið hefur fengið að njóta sín. Snyrtimennska og fjölbreytni í gróðri.“ Eiður Arnar Pálmason og Bryndís Hulda Ríkharð­dóttir.

Hafravellir 5

Ölduslóð 9

Ölduslóð 9

„Mjög snyrtilegur garður í grónu hverfi, hér hefur verið tekið rækilega í gegn og heildarmyndin er sannarlega falleg og garðurinn er samræmi við stíl hússins og þess tíma sem húsið var byggt.“ Dagný Thorarensen og Stein­þór Hlöðversson.

Ölduslóð 9

Snyrtilegasta fjölbýlishúaslóðin var Hraunvangur 1-3

Hraunvangur 1-3

„Mjög fallegar og snyrtilegar lóðir þar sem hraunið fær notið sín. Aðgengi er gott og notendavænt fyrir íbúa, góðar gönguleiðir og rými til að setjast niður og njóta sólar og útsýnis.“ Hálfdán Henrýsson formaður Sjó­manna­dags­ráðs tók við viður­kenning­unni.

Hraunvangur 1-3

Golfarar og eldri skátar eiga snyrtilegustu lóðir félagasamtaka

Golfklúbburinn Keilir

Frá golfvelli Keilir á Hvaleyri

„Virkilega falleg og snyrtileg aðkoma með velhirtum gróðurbeðum og almennri snyrtimennsku. Hér hefur verið lagt mikið uppúr að hirða græn svæði umhverfis húsið vel og leyfa náttúrunni að njóta sín samhliða. Fjölbreytni í gróðri. Almennt er allur völlurinn vel hirtur og til mikillar fyrirmyndar.“ Arnar Borgar Atlason formaður og Sveinn Sigurbergsson vara­formaður tóku við viðurkenn­ingunni.

Arnar Borgar Atlasona formaður Keilis, Helga Ingólfsdóttir form. umhverfis- og framkvæmdaráðs, Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt og Sigurbergur Sveinsson varaformaður Keilis.

St. Georgsgildið í Hafnarfirði, Skátalundur við Hvaleyrarvatn

Skátaskálinn Skátalundur við Hvaleyrarvatn

„Mikil snyrtimennska og alúð lögð við skálann og umhverfi hans. Skemmtilegar leikjaflatir i skóginum og yndislegt útsýni yfir Hvaleyrarvatn. Þarna er allt á sínum stað.“ Guðni Gíslason gildismeistari og Sigurður Baldvinsson skálanefndarmaður tóku við viðurkenningunni.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2