Landsnet hefur ákveðið að leggja Suðurnesjalínu 2 sem loftlínu eins og áður hafði verið áætlað og að hún muni liggja meðfram Suðurnesjalínu 1 að mestu leyti.
Er því öllum kröfum um að línan verði lögð í jörð hafnað og eru jarðhræringar á Reykjanesi meðal þess sem notað er í rökstuðningi.
Í tilkynningu frá Landsneti segir að eftir að álit Skipulagsstofunnar á nýju umhverfismati lá fyrir hafi aftur verið farið yfir matið og rætt við sveitarfélögin, Orkustofnun, landeigendur og verkefnaráð línunnar. Auk þess hafi gögn um jarðvá verið sérstaklega yfirfarin af rannsóknaraðilum vegna aukinnar jarðskjálftavirkni á Reykjanesi.
Eftir ítarlega yfirferð og rýni er niðurstaðan varðandi aðalvalkost óbreytt, þ.e. loftlína með fram Suðurnesjalínu 1. Ákvörðunin er sögð byggja á grundvelli ákvæða raforkulaga sem kveði á um skyldur Landsnets um að byggja upp öruggt og hagkvæmt flutningskerfi raforku og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfisins. Að auki byggi ákvörðunin á ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum um að leyfisveitingin byggi á upplýstri ákvarðanatöku hvað varðar áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið, þar sem bornir hafa verið saman valkostir, umhverfismatið kynnt opinberlega og almenningi og hagsmunaaðilum gefið tækifæri til að koma á framfæri ábendingum.
Sótti um framkvæmdaleyfi sl. föstudag
Í áliti Skipulagsstofnunar var farið fram á að sveitarfélögin tækju sameiginlega afstöðu og í ljósi þess að nú eru liðnir um sex mánuðir og að ekkert lát virðist á jarðhræringum á Reykjanesi, sem enn frekar ýtir undir mikilvægi þess að koma á annarri tengingu Suðurnesja við meginflutningskerfið, hefur Landsnet nú ákveðið að sækja um framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 og var beiðni þessi efnis send á viðkomandi sveitarfélög föstudaginn 11. desember.