fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirTakmörkun á velferðarþjónustu

Takmörkun á velferðarþjónustu

Ráðstafandir gerðar til að senda mat heim til fólks eftir að eldhúsum hefur verið lokað

Hertar sóttvarnaráðstafanir stjórnvalda tóku gildi í gær, laugardaginn 31. október. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður.

Allri skipulagðri hópastarfsemi í félagsstarfi eldri borgara verður lokað tímabundið. Hraunsel verður þó opið, starfsmenn verða til staðar og hægt að koma þangað í óformlega samveru. Virða þarf öll sóttvarnarfyrirmæli.

Mötuneytum að Hjallabraut og á Sólvangsvegi hefur verið lokað og gerðar hafa verið ráðstafanir sem gera fólki kleift að fá mat sendan heim.

Skert þjónusta að Suðurgötu 14

Óhjákvæmilegt er, vegna þessara hertu aðgerða, að skerða þjónustu á Suðurgötu 14 þar sem til húsa eru Geitungar, atvinnuúrræði fyrir fatlað fólk, Vinaskjól sem er frístundaúrræði fyrir framhaldsskólanema á starfsbraut og Kletturinn, frístundaúrræði fyrir grunnskólabörn. Allir hlutaðeigandi verða látnir vita um leið og hægt verður að hefja starfsemi að nýju með óbreyttum hætti.

  • Starfstími Geitunga, sem verið hefur kl. 8-17, verður kl. 8-12
  • Vinaskjól verður opið kl. 13-16 en ekki kl. 12-17 eins og verið hefur.
  • Kletturinn verður opinn kl. 13-16, en ekki til kl. 17 eins og verið hefur.

Öll önnur regluleg þjónusta fjölskyldu- og barnamálasviðs helst órofin, þar á meðal heimaþjónusta, stuðningsþjónusta, þjónusta í íbúðakjörnum, á heimilum og í skammtímavistun.

Starfsemin í Hæfingarstöðinni að Bæjarhrauni og að Læk verður löguð að hertum aðgerðum.

Heilbrigðisráðherra hefur hvatt til þess að fólk takmarki samskipti og hitti eins fáa og unnt er.

Grímuskylda er í þjónustuna sem að ofan greinir, fjarlægðarmörk þarf að virða og mikil áhersla er lögð á hreinlæti og sóttvarnir.

Úr tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2