fbpx
Mánudagur, desember 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirTaktu þátt í kosningu um fugl ársins

Taktu þátt í kosningu um fugl ársins

Tilkynnt verður um Fugl ársins 2022 á Degi ísenskrar náttúru, 16. september nk.

Kosningin er hafin og stendur til 12. september!

Hægt er að kynna sér fróðleiksmola um tegundirnar á www.fuglarsins.is og kjósa þann sem verðskuldar hæstan sess þetta árið á fuglarsins/kosning

Þessir keppa um að verma hæstu fuglaþúfuna 2022:

  • Auðnutittlingur
  • Himbrimi
  • Hrafn
  • Hrossagaukur
  •  Jaðrakan
  • Kría
  • Maríuerla

Hvers vegna er verið að kjósa Fugl ársins?

Með kosningu á Fugli ársins vill Fuglavernd vekja athygli á málefnum fugla. Margar fuglategundir sækja hingað til lands vegna góðra og oft framúrskarandi aðstæðna til að ala unga sína en sumar þeirra eru í hættu vegna umsvifa mannsins, loftslagsbreytinga eða eyðingu búsvæða. Einstaka fuglar njóta ákveðinna óvinsælda vegna lífshátta sinna og veitir ekki af tækifæri til að reyna að bæta ímynd sína. Mest er þetta þó til gamans gert svona í lok sumars þegar horft er til baka yfir varptímabilið og á eftir farfuglunum okkar sem vonandi snúa á vetrarstöðvarnar með ungana sína og heim aftur næsta vor.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2