Piltarnir sem lentu í sjónum við Óseyrarbryggju í gærkvöldi voru allir fluttir á slysadeild til aðhlynningar, en tveir piltanna síðan færðir á gjörgæsludeild Landspítalans og er ástand þeirra alvarlegt. Höfðu þeir verið allt að rúmum hálftíma í sjónum áður en þeir náðust upp.
Þriðji pilturinn, sem komst sjâlfur úr bílnum, var lagður inn á aðra deild spítalans og er líðan hans eftir atvikum.
Sl. nótt var Fríkirkjan opnuð fyrir þá sem á þurftu að halda í ljósi slyssins á Óseyrarbryggju. Þar voru til staðar prestar frá Fríkirkjunni og Þjóðkirkjunni, auk tónlistarstjóra Fríkirkjunnar og áfallateymi Rauða Krossins.
Í dag verður Hafnarfjarðarkirkja opnuð kl. 16 og verða prestar Fríkirkjunnar og Þjóðkirkjunnar þar með nærveru. Faðmur kirkjunnar er opinn og samfélagið allt stendur saman þegar á reynir.