fbpx
Þriðjudagur, desember 17, 2024
target="_blank"
HeimFréttirUmhverfiðGarðfuglahelgin framundan – Fólk hvatt til að telja fugla í görðum í...

Garðfuglahelgin framundan – Fólk hvatt til að telja fugla í görðum í eina klukkustund

Fuglavernd stendur fyrir árlegri garðfuglahelgi 25-28. janúar

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 25. -28. janúar nk.

Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað við mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir.

Talningin miðar við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Ekki má leggja saman. Þetta er til að forðast tvítalningar á sama fuglinum, sem ef til vill kemur á 15 mínútna fresti í garðinn. Þá er hann skráður sem 1 fugl ekki 4.

Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður rafrænt á vef Fuglaverndar www.fuglavernd.is

Gefum fuglunum

Ef fuglunum er ekki gefið reglulega þá er gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein.

Nánari upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vef Fuglaverndar, í Garðfuglabæklingi félagsins semkaupa má í vefverslun á www.fuglavernd.is sem og fóðurhús og fóður sem selt er til styrktar félaginu.

Upplýsingar um garðfuglahelgina er að finna á vef Fuglaverndar.

Á vef Fuglaverndar má skrá niðurstöður rafrænt og einnig er hægt að hlaða niður hjálparblaði talningarinnar, sem er með myndum af algengum fuglategundum og er það tilvalið fyrir börn og þá sem eru að stíga fyrstu skrefin í fuglaskoðun.

Um Fuglavernd

Fuglavernd eru frjáls félagasamtök um verndun fugla og búsvæði þeirra. Fuglavernd telur um 1.300 félagsmenn. Fuglavernd er aðili að samtökunum BirdLife International sem vinna að verndun fugla og náttúrusvæða í 120 löndum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2