fbpx
Mánudagur, febrúar 24, 2025
HeimFréttirAtvinnulíf„Útför kennarastarfsins“ – Kröfuganga í Hafnarfirði

„Útför kennarastarfsins“ – Kröfuganga í Hafnarfirði

Kennarar í Hafnarfirði boða til kröfugöngu á miðvikudaginn klukkan 15.30.

Kennarar í Hafnarfirði boða til kröfugöngu á miðvikudaginn klukkan 15.30.

Yfirskrift göngunnar er Útför kennarastarfsins.

 „Kennarar hafa áhyggur af framtíð kennarastarfsins og því að fagmennska í skólastarfi verði ekki lengur til staðar með miklum afleiðingum fyrir samfélagið. Sífellt erfiðara er að fá menntaða kennara til starfa meðan laun eru undir meðallaunum í landinu og langt undir launum sambærilegra hópa.

Mikilvægt er að gengið verði til samninga við kennara nú þegar svo afstýra megi óafturkræfum skaða á menntakerfinu,“ segir í tilkynningu.

Gengið verður fylktu liði frá Hafnarfjarðarkirkju á fund bæjarstjórnar sem fundar á þessum tíma og verður bæjarfulltrúum afhent áskorun frá kennurum í sveitarfélaginu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2