fbpx
Föstudagur, janúar 31, 2025
HeimFréttirVerkföllum aflýst í leikskólum bæjarins

Verkföllum aflýst í leikskólum bæjarins

Skrifað hefur verið undir samkomulag við Hafnarfjarðarkaupstað vegna félaga Hlífar í leikskólum bæjarins og vinnustöðvun, sem hefjast átti næstkomandi fimmtudag, hefur verið aflýst.

„Félagið telur samninginn vel ásættanlegan og að allflestum samningsmarkmiðum hafi verið náð. Mikilvægasta ákvæðið snýr að tryggingu undirbúningstíma leikskóla- og frístundaliða og stuðningsfulltrúa í leikskólum,“ segir í tilkyningu á vef Hlífar.

Samningurinn verður kynntur næstu daga. Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst um miðja viku.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2