fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirViðskiptavinir Krónunnar styrkja Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar um 975 þúsund krónur 

Viðskiptavinir Krónunnar styrkja Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar um 975 þúsund krónur 

Viðskiptavinir Krónunnar á Flatahrauni, Hvaleyrarbraut, Norðurhellu og Akrabraut í Garðabæ söfnuðu saman 975 þúsund krónum í jólastyrkjasöfnun Krónunnar. Þá gafst viðskiptavinum tækifæri til að styrkja góðgerðarsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærumhverfi í aðdraganda jóla og rennur fjárhæðin óskert til Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar sem hlýtur einnig styrk frá Krónunni í formi matarúttekta.

Alls söfnuðu viðskiptavinir Krónunnar yfir 5 milljónum króna sem renna óskertar til ellefu samtaka um land allt og mun Krónan að auki veita 6,5 milljónir króna til sömu góðgerðarsamtaka, auk tveggja samtaka til viðbótar. Heildarupphæðin nemur því 11,5 milljónum króna sem er samanlagt framlag viðskiptavina og Krónunnar til matarúthlutana.

„Við hjá Krónunni erum í skýjunum með þessar frábæru viðtökur viðskiptavina okkar í Hafnarfirði og Garðabæ sem kusu að leggja sitt af mörkum til verðugs málefnis í aðdraganda jóla. Þetta er í annað sinn sem bjóðum viðskiptavinum okkar að láta gott af sér leiða og er upphæð framlagsins í ár framar okkar björtustu vonum. Saman styrkjum við Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem sinnir mikilvægu og óeigingjörnu starfi við matarúthlutanir á svæðinu og þykir okkur hjá Krónunni afar vænt um þetta samvinnuverkefni okkar og viðskiptavina,” segir Ásthildur María Jóhannsdóttir, verslunarstjóri Krónunnar Flatahrauni.

Í söfnuninni bauðst viðskiptavinum að bæta við 500 krónum í lokaskrefi greiðslu í verslunum og Snjallverslun Krónunnar og þannig gefið tækifæri á að auka stuðning við þá sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir eru í formi gjafakorta sem gerir skjólstæðingum kleift að velja sjálfir í matarkörfuna sína.

Góðgerðarsamtök sem hljóta styrk frá viðskiptavinum og Krónunni í ár eru Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Jólasjóður Fjarðabyggðar, Selfosskirkja, Landakirkja í Vestmannaeyjum, Velferðarsvið Reykjanesbæjar, Soroptimistafélag Mosfellsbæjar, Víkurkirkja í Vík og Stórólfshvolskirkja á Hvolsvelli. Auk þessara samtaka hljóta Hjálpræðisherinn og Hjálparstarf kirkjunnar styrk frá Krónunni í formi matarúttekta.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2