fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirViðskipti2.000 m² Krónuverslun opnuð 1. júlí

2.000 m² Krónuverslun opnuð 1. júlí

Krónunni á Reykjavíkurvegi lokað og endurnýjað á Hvaleyrarbrautinni

Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar
Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar

Þann 1. júlí verður opnuð ný og glæsileg verslun Krónunnar á horni Flatahrauns og Fjarðar­hrauns. Segir Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar, þetta verða eina af glæsilegustu versl­un Krónunnar á landinu.

Verslunarhúsnæðið í heild er 2.600 m² en verslun Krónunnar verður 2.000 m². Í húsnæðinu opnar á sama tíma Domino‘s pizza og Bakarameistarinn opnar svo í lok júlí.

18 metra kjötborð

„Verslunin er mjög björt og opin, ávaxta og grænmetisdeildin er sú stærsta hjá okkur þar munum við bjóða upp á nýjungar s.s. spírubar og fl. Áherslan verður á lífræna ávexti og græn­meti ásamt hefðbundnu úrvali. Við verðum með 18 m langt kjötborð og kjötpökkun á staðn­um og getum pakkað eftir þörfum viðskiptavina og stuðlum við því að minnkun matarsóun. Einnig verðum við með mikið úrval af tilbúnum réttum auk þess sem við munum leggja mikla áherslu á lífrænar vörur og heilsuvörur. Í versluninni verður brauð bar þar munum við bjóða upp á ný bökuð súrdeigsbrauð sem hafa vakið mikla athygli og verið rómuð sem gæða brauð,“ segir Kristinn. Vöruúrvalið í þess­ari verslun mun rúmlega tvö­faldast miðað við það sem var á Reykjavíkurveginum.

Sushi og snyrtivörudeild

„Þá verður Tokyo sushi í Krónunni sem býður mikið úrval af fersku og góðu Sushi sem gert er á staðnum jafnóðum. Meðal nýrra vara má nefna mikið úrval af snyrtivörum sem ekki hefur verið mikið af í Krónuverslun­unum í Hafnarfirði. Verslunin er öll með nýjustu tækjum og frystum og led lýsing er alls­ráðandi í versluninni sem gefur skemmtilega upplifun.“ Segir Kristinn það virkilega gaman að geta komið með alvöru Krónu­verslun í Hafnarfjörð.
Verslun Krónunnar við Reykja­­víkurveg verður lokuð 30. júní en fram að þeim tíma verður veittur góður rýmingar­afsláttur auk þess sem mikið verður af glæsilegum opnun­artilboðum í nýju versluninni að sögn Krist­ins.

Endurnýjað á Hvaleyrarbraut

Þá verður verslun Krónunnar við Hvaleyrarbraut lokuð í 3-4 vikur frá 10. júlí á meðan hún verður tekin í gegn og endur­nýjuð.

Ljósmyndir: Guðni Gíslason

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2