Ný verslun Krónunnar opnuð á Völlunum á morgun

Opin kl. 9-20 alla daga vikunnar

1655

Ný verslun Krónunnar verður opnuð á morgun að Norðurhellu 1, á móts við Hellnatorg og Engjavelli. Er þetta 23. verslun Krónunnar en einungis vika er frá því að Krónan að Hallveigarstíg í Reykjavík var opnuð og þá er áætluð opna verslun Krónunnar í Austurveri eftir nokkrar vikur.

„Það er auðvitað spennandi og skemmtilegt að taka til starfa um það leyti sem þrjár nýjar verslanir eru að opna. Viðtökur á Hallveigarstígnum hafa verið langt umfram væntingar og við erum gríðarlega þakklát fyrir þann mikla hljómgrunn sem verslanir okkar hljóta. Þá er nýja verslunin að Norðurhellu, eins og allar nýjar verslanir Krónunnar, hönnuð með umhverfissjónarmið í huga og áherslan ávallt á ferskvöru og hollustu,” segir nýr framkvæmdastjóri Krónunnar, Ásta S. Fjeldsted.

Í gær var allt á fullu við frágang við verslunina.

Verður verslunarrými um 1.500 m² en auk verslunar Krónunnar verður þarna Dominos pítsur og N1 bensínstöð. Það vekur athygli að mjög vel er staðið að öllum lóðarframkvæmdum og tilkoma verslunarinnar bætir umhverfið töluvert.

Í fjölda ára hefur Krónan  lagt upp með að ferskir ávextir og grænmeti mæti viðskiptavinum um leið og gengið er inn og eru nýju verslanirnar engin undantekning. Umhverfismarkmið eru þá alltaf í forgrunni og lokaðir kælar sem skila góðum orkusparnaði.

Einnig fór af stað nýjung hjá Krónunni í haust en það eru merkingarnar „ódýrt“, sem ætlaðar eru til að einfalda viðskiptavinum að velja ódýra kosti í hverjum vöruflokki.

Sérstök opnunartilboð verða fram yfir helgi í versluninni. Opið verður í versluninni kl. 9-20 alla daga vikunnar.

Ummæli

Ummæli

Skilja eftir athugarsemd

Please enter your comment!
Please enter your name here