fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirVilja að hrekkjavökur séu eingöngu haldnar heima við

Vilja að hrekkjavökur séu eingöngu haldnar heima við

Á laugardaginn er hrekkjavaka sem sífellt hefur notið meiri vinsælda hér á landi og víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús og kalli eftir nammi undir slagorðinu „grikk eða gott“.

Almannavarnadeildir höfuðborgarsvæðisins, að teknu tilliti til þess að enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19, hvetja foreldra og forráðamenn til að halda upp á hrekkjavökuna með börnum sínum með öðru sniði í ár.

Frá hrekkjavöku í Hafnarfirði

Áhætta við að fá smit er afar mikil

„Veiran getur svo auðveldlega smyglað sér á milli staða og einstaklinga enda snertifletirnir margir þegar gengið er hús úr húsi til að fá sælgæti. Áhættan við að fá smit er afar mikil eins og staðan er núna,“ segir í tilkynningu frá Almannavörnum.

„Við erum öll almannavarnir. Höldum áfram að vinna að því saman að fækka smitum og komast á betri stað en við erum í dag. Við getum gert þetta saman og samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin,“ segir í tilkynningunni.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2