fbpx
Mánudagur, febrúar 24, 2025
HeimFréttirVilja samþykkja sáttatillögu

Vilja samþykkja sáttatillögu

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Hafnarfirði lýsa yfir fullum stuðningi við þá afstöðu formanns stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga að samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara sem lögð var fram 20. febrúar sl.

Kennarasambandið samþykkti tillöguna en meirihluti stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga ákvað að hafna henni.

Í tikynningu sem bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hefur sent frá sér, segir að staðan í kjaraviðræðum sveitarfélaga og kennara verði, að frumkvæði Samfylkingarinnar, tekin til umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar, miðvikudaginn 26. febrúar nk. enda telji þeir mikilvægt að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks upplýsi um afstöðu sína til fyrrnefndrar tillögu ríkissáttasemjara.

Á fundinum mun jafnaðarfólk leggja fram tillögu þess efnis að bæjarstjórn lýsi yfir fullum stuðningi við samþykkt innanhússtillögu Ríkissáttasemjara frá 20. febrúar sl.

„Í þessu samhengi er rétt að minna á það að leikskólakennarar í Hafnarfirði hafa samþykkt verkfall sem mun að óbreyttu hefjast 17. mars.

Aðalatriðið á þessum tímapunkti er að ná samningum við kennara, halda kennurum í starfi og stuðla að nýliðun fagfólks innan skólanna. Besta niðurstaðan er að sjálfsögðu sú að samið verði með heildstæðum hætti hjá ríki og Sambandi íslenskra sveitarfélaga en ef aðilar ná ekki saman þá kemur það til álita að einstök sveitarfélög afturkalli umboð sitt til Sambands íslenskra sveitarfélaga til samningsgerðar við aðildarfélög KÍ. Lykilatriðið er að ná samningum og nú þegar jafn lítið ber í milli samningsaðila og raun ber vitni, þá er það ábyrgðarhluti að hafna innanhússtillögu ríkissáttasemjara því áframhaldandi deilur munu valda enn frekari skaða og rýra traust á milli samningsaðila sem er nú þegar af skornum skammti.

Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa sett hugsanlegan skammtíma pólitískan ávinning ofar lausn þessarar erfiðu og þungu kjaradeilu sem nú þegar hefur staðið alltof lengi og valdið ómældum skaða fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra og kennara og annað starfsfólk skólanna. Það er ábyrgðarleysi af hálfu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks að halda skólastarfi í landinu í gíslingu vegna pólitískra leikja af þeirra hálfu. Gera verður kröfu um að þeir sýni ábyrgð við þessar aðstæður og semji við lykilstarfsfólk sveitarfélaganna en afstaða margra fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og talsmanna þeirra minnir óþægilega á harða andstöðu þeirra við gjaldfrjálsar skólamáltíðir á síðasta ári.

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hafa ítrekað óskað eftir umræðu og upplýsingum um stöðu kjaraviðræðnanna á vettvangi bæjarstjórnar og bæjarráðs en svörin og upplýsingarnar hafa verið af skornum skammti. Þar hefur Samfylkingin lýst yfir áhyggjum af stöðu viðræðnanna og hvatt samningsaðila til þess að ljúka þeim sem fyrst svo hægt verði að leggja nýjan kjarasamning fram til undirritunar og ljúka deilunni.

Nú er einfaldlega komið að ögurstundu og bæjar- og sveitarstjórnum ber að senda stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga skýr skilaboð um að nú sé nóg komið og að semja verði við kennara vegna þess að staðan er með öllu óásættanleg fyrir skólastarf, nemendur og fjölskyldur þeirra, kennarar og annað starfsfólk skólanna. Ef ekki rætist úr stöðunni er ljóst að nauðsynlegt verður að grípa til sérstakra ráðstafana. Í því samhengi er rétt að benda á þann valkost að Hafnarfjarðarbær kalli aftur samningsumboð sitt til Sambands íslenskra sveitarfélaga og semji þegar í stað við KÍ og kennara í skólum Hafnarfjarðar á grundvelli innanhússtillögu ríkissáttasemjara frá 20. feb. síðastliðnum,“ segir í tilkynningunni.

Engin svör frá bæjarstjóra

Fjarðarfréttir hefur sent bæjarstjóra fyrirspurn um afstöðu bæjarstjórnar til innanhússtillögu ríkissáttasemjara og til hans eigin afstöðu, en engin svör hafa borist frá bæjarstjóra þó fyrirspurnin hafi verið ítrekuð.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2