fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirYfir 1.000 skráðir í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

Yfir 1.000 skráðir í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

Rúmlega 1.000 manns hafa skráð sig á lista bakvarðasveitar heilbrigðisþjónustunnar. Á skrá eru einstaklingar úr 13 löggiltum heilbrigðisstéttum sem hafa boðið fram aðstoð sína.

Stéttarfélögin hafa átt frumkvæði og lagt þessu máli lið, m.a. með því að kynna bakvarðasveitina meðal félagsmanna sinna. Nemar í læknisfræði og hjúkrunarfræði geta einnig skráð sig á lista bakvarðasveitarinnar og hafa þónokkrir liðsmenn bæst í bakvarðasveitina úr þeirra röðum.

Þegar þetta er skrifað er búið að ráða 116 bakverði til starfa á heilbrigðisstofnunum hins opinbera. Þar af 72 hjúkrunarfræðinga, 34 sjúkraliða, fjóra lyfjatækna, þrjá lækna, tvo hjúkrunarfræðinema og einn læknanema.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2