FH hefur endurnýjað samninga við 2 leikmenn meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Leikmennirnir eru Hafnfirðingarnir Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir og Erna Guðrún Magnúsdóttir.
Sigmundína Sara er 24 ára varnarmaður. Hún hefur leikið 156 leiki með meistaraflokki og skorað í þeim 1 mark og einnig 10 leiki með U17 landsliðinu og 3 leiki með U19 landsliðinu.
![Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/12/SigmundinaSaraTorgrimsdóttir.jpg)
Erna Guðrún er 19 ára varnarmaður sem einnig getur spilað á miðjunni. Hún hefur leikið 52 leiki með meistaraflokki og skorað í þeim 4 mörk og einnig 3 leiki með U16 landsliðinu og 3 leiki með U19 landsliðinu.
![Erna Guðrún Magnúsdóttir](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/12/ErnaGudrún-Magnusdottir.jpg)