Nýtt gönguskíðafélag hefur verið stofnað, Gönguskíðafélag Hafnarfjarðar, en hvatamaður að stofnun þess er Sveinbjörn Sigurðsson, gönguskíðakennari og sjúkraþjálfari.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2019/11/Rúlluskíði-gönguskíði-17-1024x395.jpg)
Félagið fer rólega af stað og frekar óformlega en æfingar á rúlluskíðum eru þegar hafnar. Æfingarnar hafa verið ýmist á þriðjudögum eða miðvikudögum kl. 17.30 og mæting hefur verið við skolpdælustöðina í Hraunavík og hefur fólk æft sig á malbikuðum stíg sem liggur að golfvelli Keilis. Er félagið skilgreint sem áhugahópur um eflingu gönguskíðaíþróttarinnar á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2019/11/Rúlluskíði-gönguskíði-22-1024x679.jpg)
Fallegt veður var og fullt tungl lágt á lofti þegar blaðamaður Fjarðarfrétta kíkti á æfingu og fékk að prófa rúlluskíðin í myrkrinu. Malbikaði stígurinn hentar vel, hefur bæði sveigjur og hæðir sem reynir á gönguskíðafólkið en á einstökum stöðum voru litlir steinar sem ekki sáust þrátt fyrir góð ennisljós, en þeir geta verið varasamir.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2019/11/Rúlluskíði-gönguskíði-05-1024x586.jpg)
Nú er fyrsti snjórinn kominn í Bláfjöll og búið að leggja fyrstu sporin svo væntanlega tekur fólk nú fram sjálf gönguskíðin og heldur til fjalla.