Íslandsmót unglinga í badminton var haldið á Akranesi um liðna helgi. 150 leikmenn tóku þátt í mótinu frá átta félögum og var Badmintonfélag Hafnarfjarðar með fjölmennasta hópinn, 48 keppendur. BH-ingar voru mjög sigursælir á mótinu, unnu 31 verðlaun og 12 Íslandsmeistaratitla og voru auk þess valdir prúðasta félagið í mótslok.

Tveir BH-ingar fengu fullt hús á mótinu þ.e. sigruðu í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik en það voru þær Halla Stella Sveinbjörnsdóttir í U11 og Katrín Vala Einarsdóttir í U17 sem náðu þessum einstaka árangri.

Verðlaunahafar Badmintonfélags Hafnarfjarðar voru 21 talsins og eru eftirfarandi:
Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, þrefaldur Íslandsmeistari í U11
Katla Sól Arnarsdóttir, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í U11
Guðbjörg Skarphéðinsdóttir, 2. sæti í tvíliðaleik í U13
Hjördís Eleonora, 2. sæti í tvíliðaleik í U13
Steinþór Emil Svavarsson, Íslandsmeistari í einliðaleik í U15 og 2. sæti í tvíliðaleik í U15
Sara Bergdís Albertsdóttir, Íslandsmeistari í einliðaleik í U15B og 2. sæti í tvíliðaleik í U15
Natalía Ósk Óðinsdóttir, 2. sæti í einliðaleik í U15B
Þorleifur Fúsi Guðmundsson, Íslandsmeistari í einliðaleik í U15B
Jón Sverrir Árnason, 2. sæti í einliðaleik í U15B
Hákon Daði Gunnarsson, 2. sæti í tvíliðaleik í U15
Gabríel Ingi Helgason, 2. sæti í tvenndarleik í U15
Katrín Vala Einarsdóttir, þrefaldur Íslandsmeistari í U17
Halla María Gústafsdóttir, Íslandsmeistari í tvíliðaleik, 2. sæti í einliða og tvenndarleik í U17
Karolina Prus, 2. sæti í tvíliðaleik í U17
Ísabella Mist Heiðarsdóttir, 2. sæti í einliðaleik í U17-U19B
Sólrún Anna Ingvarsdóttir, 2. sæti í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í U19
Sebastían Vignisson, Íslandsmeistari í einliðaleik í U19B
Kristján Ásgeir Svavarsson, 2. sæti í einliðaleik í U19B
Kristinn Breki Hauksson, 2.sæti í tvíliðaleik í U19
Þórður Skúlason, 2. sæti í tvenndarleik í U19
Una Hrund Örvar, 2. sæti í tvíliðaleik í U19


