Keppni um íslandsmeistaratitil í TT (time trial) var haldin á Krýsuvíkurveginum í gærkvöldi.
Hafnfirðingurinn Birna Björnsdóttir úr 3SH varð fyrst kvenna og hampaði titlinum í fimmta sinn í röð.
Íslandsmeistari karla var Bjarni Garðar Nicolaisson úr HFR.
Gísli Ágúst Guðmundsson tók nokkrar myndir í blíðviðrinu eftir steypiregnið í gærkvöldi.