Haukar veittu í dag, á gamlársdag, viðurkenningar til sinna félagsmanna fyrir góðan árangur og þátttöku í verkefnum sérsambanda á árinu 2023.
Hápunkturinn var þó útnefning íþróttakonug og íþróttakarls Hauka en handboltan Elín Klara Þorkelsdóttir var valin íþróttakona Hauka og körfuboltamaðurinn Hilmar Smári Henningsson var valinn íþróttakarl Hauka.
Elín Klara var einnig nýlega valin íþróttakona Hafnarfjarðar eins og Fjarðarfréttir greindu frá.
Þá voru Bára Hálfdanardóttir körfuboltaþjálfari og Díana Guðjónsdóttir handboltaþjálfari, valdar þjálfarar ársins.