Bandaríska stúlkan Megan Lea Dunnigan hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild FH og mun spila með liðinu næsta sumar í úrvalsdeildinni.
Hún hefur undanfarin tvö ár spilað með ÍA á Akranesi en hún var markahæsti leikmaður liðsins í úrvalsdeildinni með 6 mörk.
“Megan er gríðarlega fjölhæfur og öflugur leikmaður sem getur leyst flestar stöður á vellinum. Það er FH því mikið fagnaðarefni að hún skuli hafa ákveðið að ganga til liðs við félagið,” segir í tilkynningu frá meistaraflokki kvenna hjá FH.
Megan er 23 ára og frá Round Rock í Texas í Bandaríkjunum.
Skemmtileg frásögn Megan á Youtube
Áður hafa þær Lindsey Harris markvörður og Caroline Murray kantmaður skrifað undir samninga við FH um að spila með meistaraflokki kvenna næsta sumar.