fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirFótboltiKR hafði betur gegn FH

KR hafði betur gegn FH

Teitur Magnússon spilaði sinn fyrsta leik

FH mætti KR í Úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fór fram í Kaplakrika.

Í fyrri hálfleik voru KR-ingar betri. KR hélt betur boltanum og þeir áttu líka fleiri skot á mark.

FH-ingar komu hálf sofandi inn í seinni hálfleikinn og komust KR-ingar í færi eftir færi. KR komst yfir á 67. mínútu er Morten Beck fékk boltann hægra megin og sendi háan bolta yfir til Tobias Thomsen sem skoraði, markið alveg í takt við leikinn.

Fleiri urðu mörkin ekki og er toppbarátta FH að hverfa úr sjón.

Teitur Magnússon spilaði sinn fyrsta leik í Úrvalsdeildinni í kvöld er hann kom inn fyrir Davíð Þór á 86 mínútu. Það fyrsta það sem Teitur gerða var að næla sér í gult spjald. Teitur er fæddur árið 2001.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2