Kvennalið FH og Hauka í knattspyrnu mætast á Ásvöllum kl. 19.15 í kvöld.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2010 sem liðin mætast í efstu deildinni en þá sigraði FH þrjá en Haukar einn í viðureignum félaganna sem enduðu í neðstu tveimur sætum deildarinnar.
Það verður því spennandi að fylgjast með viðureign Hafnarfjarðarfélaganna. Haukar hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum í mótinu, fyrst gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar, 1-5 og síðan gegn hinum nýliðinum úr Grindavík, 1-2.
FH tapaði fyrsta leik sínum gegn silfurliði Breiðabliks, 0-1 en sigraði svo Fylki 2-0.
Það er til mikils að vinna í kvöld, ekki aðeins er þetta spurning um montréttinn, heldur þurfa Haukar nauðsynlega að ná í sín fyrstu stig til að styrkja liðsandann.
Hafnfirðingar eru að sjálfsögðu hvattir til að fjölmenna á Ásvelli og fylgjast með Hafnarfjarðarliðunum mætast í kvattspyrnu.