Vigdís Jónsdóttir sleggjukastari úr FH bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti á 9. Origo móti sem fram fór í Kaplakrika í vikunni. Vigdís kastaði 62,69 metra og bætti eigið Íslandsmet um 11 sentimetra.
Fyrra metið var um tveggja vikna gamalt en Vigdís átti það sjálf og var hún að bæta Íslandsmetið í þriðja sinn í sumar og í tólfta skiptið í heildina.
Vigdís mun ásamt fremsta frjálsíþróttafólki Íslands kepps á Meistaramóti Íslands sem fer fram 25. og 26. júlí á Þórsvelli, Akureyri.