fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirFrjálsarFH Íslandsmeistarar félagsliða innanhúss

FH Íslandsmeistarar félagsliða innanhúss

Frjálsíþróttadeild FH áfram á sigurbraut

FH-ingar urðu Íslandsmeistarar félagsliða á Meistaramóti Íslandi, MÍ, í frjálsum íþróttum innanhúss sem fór fram um helgina í Laugardalshöll.

Fjögur mótsmet og tvö aldursflokkamet voru sett á mótinu.

ÍR- ingarnir Erna Sóley Gunnarsdóttir og Guðni Valur Guðnason sigruðu kúluvarpið í kvenna og karla flokki. Erna bætti 14 ára gamalt mótsmet Ásdísar Hjálmsdóttur um næstum 2 metra. Mótsmet Ásdísar var 14,98 m en Erna varpaði kúlunni 16,94 m. Í öðru sæti varð Katharina Ósk Emilsdóttir, ÍR með kast upp á 12,39m og í þriðja sæti Hera Christensen, FH með kast upp á 11,92 m. Guðni varpaði kúlunni 18,93 m sem er persónulegt met, en hann átti best 18,90 m fyrir mótið. Sindri Lárusson, UFA varð annar með kast upp á 16,19 m og Kristján Viktor Kristinsson, ÍR varð þriðji með kast upp á 14,91 m.

ÍR- ingarnir Erna Sóley Gunnarsdóttir og Guðni Valur Guðnason sigruðu kúluvarpið í kvenna og karla flokki. Erna bætti 14 ára gamalt mótsmet Ásdísar Hjálmsdóttur um næstum 2 metra. Mótsmet Ásdísar var 14,98 m en Erna varpaði kúlunni 16,94 m. Í öðru sæti varð Katharina Ósk Emilsdóttir, ÍR með kast upp á 12,39 m og í þriðja sæti Hera Christensen, FH með kast upp á 11,92 m. Guðni varpaði kúlunni 18,93 m sem er persónulegt met, en hann átti best 18,90 m fyrir mótið. Sindri Lárusson, UFA varð annar með kast upp á 16,19 m og Kristján Viktor Kristinsson, ÍR varð þriðji með kast upp á 14,91 m.

Embla bætti 14 ára gamalt mótsmet

Embla Margrét Hreimsdóttir, FH varð Íslandsmeistari í 1500 m hlaupi á nýju mótsmeti. Hún hljóp á 4:33,79 mín. Gamla mótsmetið átti Fríða Rún Þórðardóttir, ÍR frá árinu 2010, 4:36,29 mín. Öðru sætinu náði Halldóra Huld Ingvarsdóttir, FH á 4:34,10 mín og því þriðja Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, UFA á 4:44,35 mín.

Embla varð einnig Íslandsmeistari í 800 m hlaupi á 2:15,32 mín.

Halldóra Huld sló mótsmet Andreu Kolbeinsdóttur

Halldóra Huld Ingvarsdóttir, FH varð Íslandsmeistari í 3000 m hlaupi á nýju mótsmeti, 9:47,56 mín. Gamla mótsmetið átti Andrea Kolbeinsdóttir, ÍR frá árinu 2021, 9:53,47 mín. Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, UFA varð önnur á 10:05,95 mín og Íris Dóra Snorradóttir, FH þriðja á 10:10,17 mín.

Júlía Kristín Jóhannesdóttir, Breiðablik varð Íslandsmeistari í 60 m grindahlaupi kvenna á 8,56 sekúndum sem er bæði nýtt mótsmet og aldursflokkamet í flokkum stúlkna 18-19 ára og 20-22 ára. Sjálf átti hún fyrra aldursflokkametið í báðum flokkum sem var 8,60 sek. Fyrra mótsmetið átti María Rún Gunnlaugsdóttir, ÍR, 8,59 sek. frá árinu 2021. Í öðru sæti varð María Helga Högnadóttir, FH á 8,94 sek. og í því þriðja Ísold Sævarsdóttir, FH á 9,04 sek.

Sindri Karl Sigurjónsson, UMSB bætti aldursflokkametið í 3000 m hlaupi í flokki pilta 15 ára. Hann hljóp á 9:40,81 mín en fyrra aldursflokkametið átti Fannar Blær Austar Egilsson, USÚ, 9:45,55 mín frá árinu 2007.

FH sigur í þrístökki og langstökki

Irma Gunnarsdóttir, FH sigraði bæði í þrístökki og langstökki. Í þrístökkinu stökk hún 13,30 m sem er aðeins 6 cm frá Íslandsmeti hennar. Í öðru sæti varð Christina Alba Marcus Hafliðadóttir, Fjölni. Í langstökkinu stökk Irma 6,18 m. Júlía Kristín Jóhannesdóttir, Breiðabliki varð önnur með stökk upp á 5,73 m og Ísold Sævarsdóttir, FH varð þriðja með sömu lengd og Júlía en Júlía átti betri stökkseríu og hafnaði Ísold því í þriðja sætið.

Kolbeinn Höður sprettharður

Kolbeinn Höður Gunnarsson, FH varð Íslandsmeistari í bæði 60 m hlaupi og 200 m hlaupi. Styttri sprettinn hljóp hann á 6,86 sek. Annar varð Kristófer Þorgrímsson, FH á 6,96 sek. og í því þriðja varð Ísak Óli Traustason, UMSS á 7,14 sek. Kolbeinn varð einnig Íslandsmeistari í 200 m og hljóp hann á 22,21 sek. Leó Þór Magnússon, FH varð annar á 22,71 sek. og Bjarni Anton Theódórsson, Fjölni varð þriðji á 22,80 sek.

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, ÍR varð Íslandsmeistari í 400 m hlaupi á 55,72 sek. Eir Chang Hlésdóttir var ekki lang á eftir henni á tímanum 55,77 sek. Vilhelmína Þór Óskarsdóttir, Fjölni varð þriðja á tímanum 58,17 sek.

Eir Chang Hlésdóttir, ÍR varð Íslandsmeistari í 200 m hlaupi á 24,60 sek. Öðru sætinu náði Ísold Sævarsdóttir, FH á tímanum 25,56 sek. og Vilhelmína Þór Óskarsdóttir, Fjölni í því þriðja á tímanum 25,76s. Allar bættu þær sinn besta persónulega árangur.

FH Íslandsmeistarar félagsliða

Lið FH tryggði sér titilinn Íslandsmeistarar félagsliða en þau sigruðu bæði í karla- og kvennaflokki með alls 60 stig. Í öðru sæti varð lið Breiðabliks með 28 stig og lið Fjölnis í því þriðja með 26 stig.

Heildarúrslit mótsins má finna hér.

Myndir frá mótinu munu birtast hér.

Myndir og heimild: FRÍ

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2