Það var hreint ótrúlegur árangur hjá krökkunum í borðtennisdeild Badmintonfélags Hafnarfjarðar á Íslandsmóti barna og unglinga í liðakeppni nú um helgina í KR heimilinu. Borðtennisdeild BH vann fjóra flokka af sex á mótinu, þar af einn flokkinn með KR í flokki meyja 13-15 ára.
Eftirtektarvert var að lið 13 ára og yngri pilta í BH sigraði leikmenn frá BH sem eru á tíunda og tólfta aldursári.
Í flokki telpna 13 ára vörðu Íslandsmeistaratitilinn þær Sól og Alexía sem eru nú á 12 aldursári.
Þeir Magnús Gauti Birgisson og Birgir Ívarsson unnu liðakeppni drengja 16-18 ára þriðja árið í röð.
Harriet Cardew vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í flokki meyja 13-15 ára með vinkonu sinni Lóu Floriansdóttur Zink úr KR. Eru þá ótaldir þeir BH ingar sem unnu til bronsverðlauna í sínum flokkkum.
Þjálfari deildarinnar og formaður Borðtennissamabands Íslands, Ingimar Ingimarsson var afskaplega stoltur af sínu fólki í lok móts.
Segir Ingimar þetta besta árangur BH til þessa í liðakeppni barna og unglinga.
Íslandsmeistarar BH
Íslandsmeistarar í liðakeppni pilta, 13 ára og yngri:
Kristófer Júlían Björnsson,
Alexander Ivanov og
Theodór Svarfdal Sveinbjörnsson
Íslandsmeistarar í liðakeppni telpna 13 ára og yngri:
Alexía Kristínardóttir Mixa og
Sól Kristínardóttir Mixa
Íslandsmeistarar í liðakeppni meyja 13-15 ára
Harriet Cardew, BH og Lóa Floriansdóttir Zink, KR
Íslandsmeistarar í liðakeppni drengja 16-18 ára:
Birgir Ívarsson og
Magnús Gauti Úlfarsson