Þegar ein umferð er eftir í úrvalsdeild karla í handknattleik er ljóst að FH er deildarmeistari.
Valur er þremur stigum á eftir FH í öðru sæti og getur því ekki náð FH að stigum en liðið tapaði gegn KA í næst síðustu umferðinni.
FH sigraði Gróttu örugglega á útivelli 29-22. Birgir Már Birgisson, Jóhannes Berg Andrason og Símon Michael Guðjónsson voru markahæstir fyrir FH, skoruðu 5 mörk hver. Daníel Freyr Andrésson varði 19 skot.
FH tekur á móti KA á heimavelli í síðasta leiknum á föstudaginn þar sem liðið fær væntanlega bikar í leikslok.
Þegar leiknar hafa verið 21 umferð hefur FH unnið 17 leiki, gert 1 jafntefli og tapað 3 leikjum, þar af tveimur í síðustu umferðunum gegn ÍBV og Haukum en einnig gegn Val í upphafi móts.