FH er á leiðinni til Rússlands eftir að áfrýjunardómstóll úrskurðaði að fyrri úrskurður standi. Dómstóllinn komst að sömu niðurstöðu dómstóll handboltasambandsins sem var að FH myndi fara aftur til Rússlands og fara í vítakeppni og að framlengingunni sem leikin var væri ekki gild.
St. Petersburg kærði leikinn 16. október síðastliðinn og bentu þar á að bæði lið enduðu með alveg sömu markatölu, þ.e.a.s. FH vann fyrri leikinn heima 32:27 og Rússanir unnu seinni leikinn 32:27 og ætti þá að hafa farið beint í vítakeppni í stað framlengingar.
Dómstóll handboltasambandsins komst að þeirri niðurstöðu 18. október og sögðu að mistök eftirlitsdómarans frá EHF væru augljós, sem voru að fara í framlengingu í stað vítakeppni og bentu á grein 6.4 í lagareglum EHF og grein 4.2 í reglugerð EHF bikarsins sem hægt er að lesa hér að neðan.
Óljóst er hvenær vítakeppnin verður haldin en sigurvegarinn úr því einvígi fer áfram í 3. umferð og mætir þar TATRAN Presov. Fyrri leikirnir hjá hinum liðunum í 3. umferð verða leiknir 18. og 19. nóvember.