fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirHandboltiHafnarfjarðarmótið í handbolta hefst í dag á Ásvöllum

Hafnarfjarðarmótið í handbolta hefst í dag á Ásvöllum

Haukar keppa við Val kl. 18 í dag og FH við Selfoss kl. 20

Hafnarfjarðarmótið í handbolta karla hefst í dag kl. 18 með leik Hauka og Vals en mótið er eitt helsta æfingarmótið á hverju hausti.

Mótið í ár er haldið til heiðurs 150 ára fæðingarafmælis Sr. Friðriks og af því tilefni verður leikið á heimasvæði Haukanna, á Ásvöllum.

Leikið er í dag, þriðjudag, fimmtudag og laugardag og eru þáttakendur mótsins í ár Haukar, FH, Selfoss og Valur.

Mótið er því mjög sterkt en þetta eru öll lið sem voru í topp 5 á síðustu leiktíð.

Þriðjudagur 21. ágúst

  • kl. 18:00 Haukar – Valur
  • kl. 20:00 FH – Selfoss.

Fimmtudagur 23. ágúst

  • kl. 18:00 FH – Valur
  • kl. 20:00 Haukar – Selfoss.

Laugardagur 25. ágúst

  • kl. 14:00 Selfoss – Valur
  • kl. 16:00 Haukar – FH.

Frítt er inn á mótið og verða allir leikir mótsins sýndir beint á Haukar TV.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2