Meistaraflokkur kvenna spilar í 1. deildinni í sumar. Þetta er ungt og efnilegt lið sem er að mestu skipað uppöldum stúlkum í Haukum. Liðið keppti í C-deild Lengjubikarsins og sigraði Keflavík 2-0 í úrslitaleik og er því Lengjubikarmeistari í C-deild. Hildigunnur Ólafsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir skoruðu mörk Hauka.
ÍBV varð bikarmeistari í A-deild og Valur í B-deild en Valur sigraði FH 4-1 í síðasta leik og endaði FH í 3. sæti.
Þjálfari liðsins er Kjartan Stefánsson og honum til aðstoðar er Jóhann Sigurðsson.