fbpx
Föstudagur, janúar 31, 2025
HeimÍþróttirHandboltiHaukar töpuðu fyrsta leiknum eftir slæmar tíu mínútur

Haukar töpuðu fyrsta leiknum eftir slæmar tíu mínútur

Næsti leikur er á sunnudaginn kl. 18 á Ásvöllum

Haukar mættu Val í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn á Hlíðarenda fyrr í dag.

Fyrstu mínútur leiksins voru nokkuð jafnar en fljótlega náðu Haukar forystunni og náðu 3 marka forystu þegar um 15 mínútur voru búnar af leiknum, 5-8. Valur náðu þá á næstu 10 mínútum að komast yfir eftir góðan kafla, 12-11. Liðin fóru jöfn inn í seinni hálfleikinn 16-16.

Seinni hálfleikurinn byrjaði svipað og fyrri hálfleikurinn, bæði lið jöfn en eftir tæpar 15 mínútur komast Haukar í 4 marka forystu, 20-24. Haukar missa síðan Elínu Klöru út af í tvær mínútur og nýttu Valur það sér vel og jafna leikinn eftir 4 mörk í röð, 24-24 þá 9 mínútur eftir af leiknum. Valur hætti ekki þar og skoruðu 2 mörk til viðbótar áður en Haukar skoruðu sitt fyrsta mark í um 10 mínútur. Sara Kristín nær síðan að jafna leikinn, 26-26 þegar 3 mínútur eru eftir. Haukar áttu síðustu sóknina og fengu gott tækifæri til að jafna leikinn en tapa boltanum eftir lélega sendingu niður í horn og vann því Valur eins marka sigur, 28-27.

Valskonur eru því komnar í 1-0 í viðureigninni. Næsti leikur er á sunnudaginn kl. 18 á Ásvöllum. Vinna þarf þrjá leiki til að vinna titilinn.

Mörk Hauka:
Elín Klara Þorkelsdóttir – 10
Sara Oddsen – 5
Birta Lind Jóhannsdóttir – 2
Inga Dís Jóhannsdóttir – 2
Sara Kristín Gunnarsdóttir – 4
Ragnheiður Sveinsdóttir – 1
Sonja Lind Sigsteinsdóttir – 1
Alexandra Líf Arnardóttir – 1
Ragnheiður Ragnarsdóttir – 1

Varin skot
Margrét Einarsdóttir – 10

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2