fbpx
Mánudagur, júlí 15, 2024
HeimFréttirHeiða Karen og Vikar úr AÍH eru akstursíþróttafólk ársins

Heiða Karen og Vikar úr AÍH eru akstursíþróttafólk ársins

Heiða Karen er aðeins 18 ára

Verðlaunaafhending meistaratitla akstursíþrótta fór fram nýlega þar sem tilkynntir voru Íslandsmeistarar í öllum greinum akstursíþrótta Akstursíþróttasambands Íslands.

Eftir tilnefningar frá keppnisráðum einstakra greina og netkosningu kaus formannafundur AKÍS eina konu og einn karl sem akstursíþróttamenn ársins en að þessu sinni komu þau bæði úr röðum Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar.

  • Akstursíþróttakona ársins 2020 er Heiða Karen Fylkisdóttir, AÍH
  • Akstursíþróttamaður ársins 2020 er Vikar Sigurjónsson, AÍH

Eru þau jafnframt tilnefnd af AKÍS til kjörs íþróttamanns ársins 2020.

Vikar Karl Sigurjónsson

Vikar Karl Sigurjónsson keppir undir merkjum Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar (AÍH) og tekur virkan þátt í starfsemi þess félags, sem og akstursíþróttastarfi á Suðurnesjum þar sem hann er búsettur.  Vikar hampaði bikar- og Íslandsmeistaratitli í 2000 flokki í rallýcossi eftir harða keppni í sumar. Hann tók einnig þátt í tveimur rallýkeppnum.

Vikar er eigandi og framkvæmdastjóri heilsu- og líkamsræktarstöðvarinnar Lífsstíls í Reykjanesbæ og stundar líkamsrækt og íþróttir af kappi. Í akstursíþróttum sem annars staðar er árangur nátengdur líkamlegu og andlegu atgervi þar sem gott þrek og úthald gegna lykilhlutverki.

Sem keppandi og félagi hefur Vikar vakið sérstaka athygli fyrir jákvæða framkomu og gott viðmót. Hann er gleðigjafi, hugmyndaríkur og málefnalegur í umræðum. Þegar hann kom að fræðslu á unglinganámskeiði í akstursíþróttum sl. vetur lagði hann m.a. ríka áherslu á vináttu og liðsheild sem lýsir viðhorfum hans vel.

Vikar hefur haldið úti, ásamt liðsfélögum sínum, fjörlegri umfjöllun á samfélagsmiðlum í því skyni að vekja áhuga og athygli á liði sínu og akstursíþróttum í heild.

Með jákvæðri framgöngu, glaðværð og hreysti er Vikar Sigurjónsson öðru íþróttafólki góð hvatning og fyrirmynd og vel að því kominn að hljóta tilnefningu sem akstursíþróttamaður ársins 2020.

Heiða Karen Fylkisdóttir

Heiða Karen Fylkisdóttir er 18 ára keppandi frá Akstursíþróttafélagi Hafnarfjarðar.  Heiða Karen er alin upp í kringum akstursíþróttir og á ekki langt að sækja áhugann þar sem móðurafi hennar var einn af stofnendum Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur (BÍKR) og faðir hennar Fylkir A. Jónsson er formaður Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar (AÍH) og fyrrum Íslandsmeistari í rallý og rallýcrossi.

Heiða Karen hóf keppni í unglingaflokki í rallýcrossi 15 ára gömul, árið 2018. Árið 2020 færði hún sig um set í 1000 cc flokkinn og lýkur Íslandsmeistaramótinu þar í 10. sæti eftir hressilegra baráttu í sumar við marga frábæra ökumenn.  Í sumar tók Heiða Karen einnig þátt í Íslandsmeistaramótinu í rallý sem aðstoðarökumaður föður síns og var það hennar fyrsta keppnisreynsla í rallý.  Skemmst er frá því að segja að þó faðir hennar hafi áður hampað Íslandsmeistaratitli tókst honum nú með Heiðu Karen sem aðstoðarökumann, að vinna fyrstu keppni sína, eftir glæsilegan árangur í síðustu keppni ársins, við einstaklega krefjandi og erfiðar aðstæður.  Eru þau þar með búin að skrá nöfn sín á blöð íslenskrar akstursíþróttasögu sem fyrstu feðgin til að landa sigri í rallýkeppni hérlendis.

Heiða Karen lauk keppni á Íslandsmeistaramótinu í fimmta sæti í heildina af 33 keppendum en hún gerir margt fleira en að sitja um borð. Hún er liðtæk við að vinna í keppnistækjunum milli keppna, m.a. sprautaði hún rallýcrossbílinn sinn sjálf.  Þá er hún öflugur talsmaður akstursíþrótta með þátttöku í kynningum, á samfélagsmiðlum, hlaðvarpi og víðar.  Heiða Karen þekkir íþróttalífið úr fleiri áttum eftir áralanga þátttöku í dansíþróttum, m.a. á vettvangi landsliðsins í samkvæmisdönsum.  Hún gerir ríkar kröfur til sín og hefur keppnisskap og metnað til að gera sífellt betur. Hún er glaðlynd, jákvæð og alltaf tilbúin að leggja gott til.  Heiða Karen er afar efnilegur keppandi, góð fyrirmynd og á svo sannarlega heima í hópi kvenna sem hljóta tilnefningu sem akstursíþróttakona ársins 2020.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2