Karatedeild Hauka átti einn keppenda á Reykjavíkurleikunum en karatekeppni Reykjavíkuleikanna var í gær sunnudag.
Hjördís Helga Ægisdóttir keppti og stóð sig glæsilega. Hún endaði í 3. sæti í Kata keppni og í 2. sæti í Kumite, sem er bardagahluti Karate. Hún tapaði viðureigninni um gullið fyrir sterkum keppanda frá Skotlandi.
Í þriðja sæti í Kumite varð Hafnfirðingurinn Ronja Halldórsdóttir. Hún varð einnig í öðru sæti í Kata og deildi 3. sæti í senior flokki í Kata