Þríþrautadeild Sundfélags Hafnarfjarðar raðaði inn verðlaunum á uppskeruhátíð Þríþrautasambands Íslands fyrir skömmu.
Hjördís Ýr Ólafssdóttir varð stigahæst í kvennaflokki og þar með þríþrautakona ársins. Hjördís varð einnig bikarmeistari einstaklinga 2016 með 14 stig af 150 mögulegum.
Bjarki Freyr Rúnarsson varð svo þriðji í stigakeppni karla en hann varð einnig þriðji í bikarkeppni einstaklinga.
Valerie Maier og Anton Ingvarsson voru valin byrjendur ársins og SH varð stigahæsta þríþrautafélagið annað árið í röð.
Sundfélag Hafnarfjarðar sigraði einnig í bikarkeppni félaga, fékk 1.117 stig.

Hjördís Ýr Ólafsdóttir

Hjördís Ýr er 34 ára iðnhönnuður og hefur stundað þríþraut í nokkur ár, mestmegnis æft og keppt í Ástralíu þar sem hún bjó frá 2007-2009 og svo 2011 til lok ársins 2015.
Fyrsta sumarið sem hún keppti í þríþraut á Íslandi vann hún stigakeppni Þríþrautarsambands Íslands og hlaut því titilinn þríþrautakona ársins. Hún varð tvöfaldur Íslandsmeistari, í sprettþraut í Kópavogi og í ólympískri þríþraut á Laugarvatni.
Einnig varð hún í öðru sæti í WOW hálfri ólympískri þríþraut í Hafnarfirði og Challenge hálfum járnkarli í Kjós í sumar. Þá hefur hún líka tekið þátt í hjólareiðakeppnum og náð verðlaunasætum þar.