Rúmlega 100 manna hópur frá Hlaupahópi FH hélt á fimmtudag til Omegna við Lago d‘Orta vatnið í NV-Ítalíu.
89 hlauparar taka þar þátt í miklu fjallahlaupi sem þeir hafa undirbúið sig fyrir síðustu mánuðina. Vel var tekið á móti hópnum og fögnuðu ítölsku mótshaldarnir þessum stóra hópi sem kom alla leið frá Íslandi.
17 til 100 km hlaup
Lengsta hlaupið sem Íslendingarnir taka þátt í er 100 km hlaup þar sem heildarhækkun á hlaupaleiðinni er samtals 6.210 metrar og jafnmargir metrar niður en hæsti tindur sem farið er á er 1.640 metrar eins og í 34 og 60 km hlaupinu.
Fjórar konur og tveir karlar úr Hlaupahópi FH taka þátt í 100 km hlaupinu en enginn þeirra hefur hlaupið svona langt áður. Yngsti hlauparinn er 28 ára en sá elsti er 54. Hefst hlaup þeirra kl. 11 í kvöld og hlaupa því í myrkri í alla nótt. Svona hlaup er gríðarleg þrekraun, bæði líkamlega og ekki síður andlega.
12 Íslendingar taka þátt í 60 km hlaupinu, sjö karlar og fimm konur, yngsti hlauparinn er 26 ára og sá elsti 62. Heildarhækkun í þessu hlaupi er samtals 3.330 m en hæst er farið 1.640 m hæð eins og hjá 100 m hlaupurunum. Þetta verður lengsta hlaup allra 12 en allir höfðu hlaupið Laugaveginn sem er 53 km en mun minni heildarhækkun. Halda hlaupararnir af stað kl. 9 í fyrramálið.
Alls taka 37 úr hópnum þátt í 34 km hlaupi en heildarhækkun í þessu hlaupi er 2.200 m og hæsti tindurinn er eins og í lengri hlaupunum 1.640 m.
33 Íslendingar taka þátt í 17 km hlaupi og ein kona tekur þátt í 17 km norrænni göngu sömu leið. Heildarhækkun í 17 km hlaupinu er 680 m en hæst verður farið í rúmlega 600 m hæð yfir sjó en öll hlaupin hefjast í um 300 m hæð yfir sjó. Hlaupa þeir á sunnudag.
Spáð hefur verið mikilli rigningu, sérstaklega á sunnudag en þá er spáð allt að 100 mm sólarhringsrigningu.
Bein útsending
Beinar útsendingar verða frá hlaupinu, a.m.k. frá marksvæðinu hér.
Einnig koma myndir og myndbönd inn á Instagram
Nánar má lesa um hlaupið hér www.ultratraillo.com