Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti sitt eigið Íslandsmet í 50 metra bringusundi um 5/100 úr sekúndu. Hún synti 50 metrana á 30.42 sekúndum en fyrra metið var 30.47 sem Hrafnhildur setti 6. desember á seinasta ári.
Hrafnhildur hefur nú unnið allar sínar fimm einstaklingsgreinar á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem endar nú í kvöld.
Hrafnhildur var einnig í boðsundsveit SH sem bætti Íslandsmet í gær.