Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti aftur sitt eigið Íslandsmet í 50 metra bringusundi á Evrópumótinu í 25 m laug sem haldið er í Kaupmannahöfn en hún setti fyrra metið fyrir tæpum mánuði síðan. Hrafnhildur synti á tímanum 30,20 sekúndum og bætti metið sitt um 22/100 úr sekúndu.
Hrafnhildur var með sjöunda besta tímann í undanrásunum en fer með sjötta besta tímann í undanúrslitin því reglur mótsins kveða á um að eingöngu tvær manneskjur mega fara í undanúrslit frá hverju landi. Það voru þrír Finnar sem voru í topp fimm og datt því einn út.
Undanúrslitin hefjast kl. 16:00 og verða þau sýnd í beinni útsendingu á RÚV.
Hrafnhildur náði lágmörkum í fjórum greinum en keppir bara í einni vegna prófa.