Knattspyrnufélagið Haukar útnefndu í dag, gamlársdag, íþróttakarl og íþróttakonu Hauka 2016. Deildir félagsins, almenningsíþróttadeild, handknattleiksdeild, karatedeild, knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild tilnefndu öll eina konu og einn karl.
Körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir var útnefnd íþróttakona Hauka 2016 og körfuknattleiksmaðurinn Kári Jónsson var útnefndur íþróttakarl Hauka 2016. Helena tók við verðlaununum á hátíð á Ásvöllum í dag en bróðir Kára tók við verðlaununum fyrir hans hönd.
Helena Sverrisdóttir átti frábært tímabil í fyrra og leiddi lið Hauka til deildarmeistaratitils og í úrslitaleik Dominosdeildar kvenna þar sem Hauka liðið þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Snæfelli í oddaleik. Helena sýndi á síðasta tímabili af hverju hún er talinn besti kvenna körfuboltaleikmaður sögunnar, en hún sýndi oft á tíðum stórkostleg tilþrif þar sem hún leiddi útlendingalaust Haukalið í úrslit. Herlena var auk þess lykilmaður í A- landsliði KKÍ þar sem hún leiddi liðið í stærsta sigri sem kvennalandsliðið hefur náð er þær lögðu Ungverja hér heima í stórkostlegum leik, þar sem Helena skoraði yfir 30 stig og tók yfir 10 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.
Kári Jónsson átti einstaklega gott tímabil í fyrra í Dominosdeild karla. Þrátt fyrir ungan aldur, fæddur 1997, var hann lykilmaður í Haukaliðinu sem átti einstaklega gott ár í fyrra og fór alla leið í úrslitaviðureign deildarinnar. Kári leiddi sóknarleik liðsins af ótrúlegri rósemi og festu og sýndi einstaka leiðtogahæfileika. Kári var valinn besti leikmaður seinni umferðar Dominosdeildarinnar sem er einstakt afrek af svo ungum leikmanni en hann var einnig valinn í 5 manna stjörnulið deildarinnar. Kári var auk þess lykilmaður í frábærum árangri U20 ára landsliðs KKÍ þar sem þeir unnu sér sæti í A riðli og átti Kári þar frábæra leiki og sem dæmi skoraði hann 28 stig í mikilvægum sigri á Grikkjum í 8 liða úrslitum. Kári var einnig valinn í 18 manna æfingahóp A- landsliðsins og gerði svo skólasamning við Drexel skólann í Philadelphia. Kári var í sumar valinn einn af 10 efnilegustu leikmönnum Evrópu í sínum aldursflokki.
Aðrir sem tilnefndir voru:
- Guðrún Ásta Árnadóttir almenningsíþróttadeild
- Hjördís Helga Ægisdóttir karatedeild
- Sara Rakel Hinriksdóttir knattspyrnudeild
- Maria Innes de Silva Perrera handknattleiksdeild
- Gunnar Ingi Ingvarsson karatedeild
- Sigurður Sveinn Antonsson almenningsíþróttadeild
- Alexander Freyr Sindrason knattspyrnudeild
- Janus Daði Smárason handknattleiksdeild
Gunnar útnefndur þjálfari ársins
Gunnar Magnússon var útnefndur þjálfari Hauka 2016.
Gunnar tók við þjálfun karlaliðs Hauka vorið 2015 og stýrði meistaraliði Hauka til sigurs í 3 af 4 keppnum sitt fyrsta tímabil þar sem Haukar hömpuðu Íslandsmeistaratitli, Deildarmeistara- og Deildarbikarmeistaratitli ásamt því að leika í undanúrslitum í Bikarkeppni HSÍ. Haukar sýndu mikla yfirburði í Deildarkeppninni s.l. ár og sýndi Gunnar mikla kænsku við stjórn liðsins allt tímabilið. Gunnar hefur sýnt og sannað að hann er einn af Íslands færustu þjálfurum og er ákaflega þægilegur og faglegur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.
Aðrir sem tilnefndir voru:
- Eva Ósk Gunnarsdóttir karateþjálfari
- Ívar Ásgrímsson körfuknattleiksþjálfari
- Kjartan Stefánsson handknattleiksþjálfari
Guðborg heiðruð
Guðborg Halldórsdóttir fékk sérstaka viðurkenningu fyrir mikið og óeigingjarnt starf fyrir Hauka.
„Heldri Haukar“ fengu viðurkenningu
Hópur eldri Hauka sem vinna mikið og óeigingjarnt starf fyrir félaga var sérstaklega heiðraður en þeirra verk er m.a. að koma bílaleigubílum út á Keflavíkurflugvöll sem er fjáröflun fyrir félagið. Þeir voru heiðraðir sérstaklega.
Landsliðsfólk Hauka heiðrað
Stór hópur úr flestum deildum félagsins tekur þátt í landsliðsverkefnum og voru þeir einstaklinga sérstaklega heiðraðir með rós.