Maribor eru komnir yfir eftir 1:0 sigur þeirra á FH í kvöld í Meistaradeild Evrópu.
FH-ingar vörðust vel í leiknum og ættu að vera ánægðir með frammistöðu sína. Eina mark leiksins kom ekki fyrr en á 54. mínútu er Marcos Tavares skallaði boltanum í markið eftir stoðsendingu frá Aleksander Rajcevic, varnarmenn FH hefðu getað gert betur þarna.
Fín úrslit þrátt fyrir tap, nú er bara að fjölmenna á völlinn í Kaplakrika eftir viku og hvetja FH-inga áfram.