Ólafía Kvaran, 49 ára hjúkrunarfræðingur úr Hafnarfirði, varð sl. sunnudag heimsmeistari í aldursflokki 45-49 ára kvenna á Spartan Beast heimsmeistaramótinu í hindrunarhlaupi í Squaw Valley í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Hún þurfti að takast á við mjög krefjandi aðstæður í 23 km hlaupinu sem var með 1400 m hækkun og 36 hindrunum, svo ekki sé minnst á snjó, kulda og rok sem gerði mörgum keppendum erfitt fyrir. Hindranirnar á hlaupaleiðinni voru til dæmis sund, klifur og ýmiss konar burður.
Mótið var haldið í North Lake Tahoe þar sem vetrarólympíuleikarnir voru haldnir árið 1960.
Ólafía kom í mark á 4:08:34 klst. og varð nokkuð örugglega fyrst af 31 í sínum aldursflokki, 17. af 263 konum og nr. 198 af 683 keppendum.
Sparan Race er hindrunarhlaup þar sem keppendur takast á við ýmiss konar hindranir á hlaupaleiðinni, sem er utanvega, og oft með töluverðri hækkun. Íþróttin nýtur gífurlegra vinsælda í Bandaríkjunum og keppendum fer jafnfram fjölgandi í Evrópu og Asíu, enda keppt í um það bil 40 löndum í heiminum.
Ólafía tryggði sér þátttökuréttinn með því að verða 4. í sínum aldursflokki á mjög erfiðu Spartan Beast móti í Vestur Virginíu 24. ágúst sl. þar sem hún kom í mark á 3:33:20 klst.
Þá varð hún einnig fyrst í sínum aldursflokki og 3. kvenna í Spartan Sprint móti í Vermont 15. september þar sem hún kom í mark á 1:11:36 klst.
Hér má sjá myndband frá keppninni sem sýnir vel hvernir aðstæðurnar voru.
Fréttin birtist fyrst í fréttablaðinu Fjarðarfréttum 2. október 2019. Hér birt uppfærð.
Ljósmyndir: Spartan og Friðleifur Friðleifsson.