Tvö lið frá Íslandi tóku þátt í CupDenmark fótboltamótinu sem er ný lokið. Alls tók 171 lið frá 15 löndum þátt og leikið var í 14 aldurshópum. Bæði íslensku liðin voru frá FH, lið 1 og 2 sem kepptu bæði í aldursflokki stúlkna sem fæddar eru 1999. Stúlkurnar léku því við eldri stelpur en FH-stúlkurnar eru allar fæddar 2000 og 2001.
FH 1 sigraði í A-riðli, vann alla þrjá leiki sína og fékk ekki á sig mark. Vann liðið tvo leiki 6-0 og einn 2-0.
Í B-riðli vann FH 2 tvo leiki og tapaði einum og varð í 2. sæti á lakara markahlutfalli.
FH liðin mættust svo í undanúrslitum og sigraði FH 1 með tveimur mörkum gegn einu. FH 1 lék síðan gegn Wa IF frá Svíþjóð í úrslitum og vann 6-5 eftir vítaspyrnukeppni.
FH 2 sigraði svo Vellinge IF frá Svíþjóð í keppni um bronsið, 2-1.
Þjálfarar liðanna eru Vilhjálmur Kári Haraldsson og Tómas Leifsson en Vilhjálmur og Sigþór Árnason voru með liðunum í Danmörku.