280 sundmenn úr 14 félögum munu stinga sér til sunds næstu helgi í Ásvallalaug, Hafnarfirði, á Extramóti SH.
HM-sundmennirnir og sundkonurnar Hrafnhildur Lúthersdóttir, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Aron Örn Stefánsson og Kristinn Þórarinsson eru meðal fyrstu keppenda.
Sundmótið verður haldið á laugardag og sunnudag, aðeins þremur vikum fyrir Íslandsmeistaramótið, og er því síðasta tækifæri til að prófa formið og hraðann á þessu tímabili.
Einhverjir sundmenn eru jafnvel að reyna við lágmörk fyrir Evrópumeistaramótið sem er í desember, og aðrir fyrir Norðurlandameistaramótið sem verður haldið í Reykjavík einnig í desember.
Tímatafla mótsins:
- Laugardagur fyrir hádegi kl. 10.00 – 13.00
- Laugardagur eftir hádegi kl. 16.00 – 19.00
- Sunnudagur fyrir hádegi kl. 10.00 – 13.00
Úrslit í beinni má sjá hér en þar má einnig sjá nákvæman tímaseðil með því að smella á „start list”.