fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirSundAnton Sveinn stórbætti Íslandsmetið í 200 metra bringusundi

Anton Sveinn stórbætti Íslandsmetið í 200 metra bringusundi

Þriðja Íslandsmetið sem Anton Sveinn setur á mótinu í Kína

Hafnfirski sundmaðurinn úr SH, Anton Sveinn Mckee stórbætti Íslandsmet sitt í 200 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í sundi í 25 m laug í Kína í gær.

„Eftir góðan árangur í 100 metra bringusundinu, sem Anton Sveinn taldi góðan undirbúning fyrir þessa grein, var ánægjulegt að sjá hann útfæra 200 metra sundið eins og best var á kosið,” segir í frétt Sundsambands Íslands.

Anton Sveinn kom í mark á nýju Íslandsmeti 2:04,37 og varð 10 í greininni og komst því ekki áfram í úrslit.

Anton Sveinn æfir við býsna krefjandi aðstæður, hann er í fullri vinnu sem krefst töluverðra ferðalaga, en með skipulagi og metnaði hefur honum tekist að koma sér upp æfingaáætlun sem virðist henta honum vel. Gamli þjálfarinn hans úr háskólanum og svo Klaus Jürgen Ohk yfirþjálfari SH eru honum svo innan handar með að meta álag og setja æfingarnar í samhengi. Þetta kemur fram á vef Sundsambandsins.

Anton Sveinn átti sjálfur gamla metið í greininni, 2:07,04 frá því á ÍM25 í nóvember síðastliðnum, en heimsmetið og einnig mótsmetið á Marco Koch frá Þýskalandi, 2:00,44 sem hann setti á HM25 í Windsor í Kanada 2016.

Anton keppir á laugardag í 50 metra bringusundi

Segir Anton Sveinn að orð geti ekki lýst því hversu ánægður hann sé með árangur sinn á mótinu til þessa og er sérstaklaga ánægður með 200 m sundið þar sem hann náði öðrum besta tíma sem náðst hefur af Norðurlandabúa. Segist hann hlakka til 500 m bringusundsins á laugardaginn.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2