Anton Sveinn McKee varð í fjórða sæti í 200 m bringusundi á Evrópumótinu í 50 m laug.
Hann synti á 2:10,28 mínútum og var aðeins 8/100 úr sekúndu frá þriðja sætinu.
Var þetta mjög spennandi sund þar sem tveir sundmenn enduðu á nákvæmlega sama tímanum 2:09,45 mínútum en sá þriðji var á tímanum 2:10,20 mínútum.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr SH keppir í 50 m skriðsundi í fyrramálið.