Ásvallamóti Sundfélags Hafnarfjarðar lauk um um hádegisbil í dag í Ásvallalaug.
Stóð sundfólkið sig með mikilli prýði, aldursflokkamet og mótsmet voru sett og lágmörkum á stærri mót var náð.
Alls kepptu 210 sundmenn frá 11 félögum í þessari síðustu sundkeppni í mars.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr SH var aftur undir lágmarki fyrir Evrópumeistaramótið í Búdapest í 50 m skriðsundi, en fyrirhugað er að mótið verði haldið í maí.
Patrik Viggó Vilbergsson og Kristín Helga Hákonardóttir úr Sunddeild Breiðabliks náðu lágmörkum fyrir Evrópumeistaramót Unglinga, sem verður í Aberdeen í júlí.
Birnir Freyr og Freyja settu Íslandsmet
Birnir Freyr Hálfdánarsson úr SH setti Íslandsmet í drengjaflokki í 50 m flugsundi er hann syndi á 26,87 sekúndum.
Freyja Birkisdóttir úr Sunddeild Breiðabliks setti Íslandsmet í telpnaflokki í 800 m skriðsundi er hún synti á á 9,20.66 mínútum.
Steingerður og Patrik stigahæst
Besta árangri í einstöku sundi náðu þau Steingerður Hauksdóttir, SH, í 50 m baksundi er hún synti á 29,49 sekúndum sem gaf 765 stig og Patrik Viggó Vilbergsson í Sunddeild Breiðabliks í 1500 m skriðsundi er hann synti á 16,08.55 mínútum sem gaf 727 stig.
Ellfu sundmenn náðu lágmörkum fyrir Norðurlandameistaramótið Æskunnar sem verður haldið í Litháen í júlí.
- Birnir Freyr Hálfdánarson, SH, 100 m baksund
- Daði Björnsson, SH, 100 m bringusund
- Dagbjörg Hlíf Ólafsdóttir, SH, 50 m skriðsund
- Snorri Dagur Einarsson, SH, 100 m bringusund
- Veigar Hrafn Sigþórsson, SH, 400 m fjórsund
- Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, ÍA, 50 m skriðsund
- Guðmundur Karl Karlsson, Breiðablik, 200 m skriðsund
- Vigdís Tinna Hauksdóttir, Breiðablik, 100 m flugsund
- Freyja Birkisdóttir, Breiðablik, 400 m skriðsund, 400 m fjórsund og 800 m skriðsund
- Fannar Snævar Hauksson, ÍRB, 100 m flugsund
- Eva Margrét Falsdóttir, ÍRB, 200 m bringusund og 400 m fjórsund
Fjögur mótsmet voru sett
- Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, SH, 100 m skriðsund og 100 m flugsund
- Patrik Viggó Vilbergsson, Breiðabliki, 1500 m skriðsund og 800 m skriðsund