fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirSundGuðni forseti afhenti Steingerði Ásgeirsbikarinn

Guðni forseti afhenti Steingerði Ásgeirsbikarinn

Sundfélag Hafnarfjarðar sterkasta liðið í ÍM50

Hátíð titla, persónulegra bestu tíma, meta, verðlauna og lágmarka fór fram um síðustu helgi í Laugardalslaug á Íslandsmeistaramótinu í 50 m laug.

Sundfólk úr Sundfélagi Hafnarfjarðar náði mjög góðum árangri eins og sjá má hér í yfirliti sem Klaus Jurgen Ohk hefur tekið saman.

  • SH vann meira en helming allra Íslandsmeistaratitla: 25 gullverðlaun (af 40), 15 silfurverðlaun og 14 bronsverðlaun.
  • Steingerður Hauksdóttir átti besta afrek mótsins, fékk flest stig fyrir 50 m baksund og afhenti forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson henni Ásgeirsbikarinn fyrir afrekið. Bikarinn er gefinn í minningu Ásgeirs Ásgeirssonar fyrrverandi forseta Íslands fyrir besta afrek á ÍM50 skv. stigatöflu FINA. Gefandi bikarsins er forseti Íslands.
  • Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Símon Elías Statkevicius náðu lágmarki fyrir í EM í ágúst í Róm, ITA.
  • Boðsundssveitir SH settu 4 ný íslensk aldursflokkamet, Birnir Freyr Hálfdánarsson setti 2 ný íslensk piltamet, sem og Snorri Dagur Einarsson sem setti tvö met.
  • Auguste Balciunaite bætti 4 sinnum Íslandsmet í meyjaflokk 100 m bringusundi.
  • Birnir Freyr og Snorri Dagur komust í EMU og Bergur Fáfnir Bjarnason í NÆM. (Birnir mun keppa á EYOF og NÆM í stað EMU).
  • 14 sundmenn úr SH komust í landsliðið.
  • Sundfólk höfrunga, hákarla og sverðfiska náðu sínum besta tíma samtals 99 sinnum.. Einnig sýndu yngri sverðfiskar og 1 höfrungur sig frábærlega á sínu fyrsta ÍM50.
Símon Elías Statkevicius

Nýir Íslandsmeistarar úr SH:

  • 5 – Veigar Hrafn Sigþórsson (400 m fjór+skrið, 800 og 1500 m skrið, 4×200 m skrið)
  • 5 – Símon Elías Statkevicius (50+100 m skrið, 50m flug, 4×100 m skrið, 4×100 m fjór)
  • 5 – Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (50+100 m skrið, 50m flug, 4×100 m fjór, 4×100 m skrið)
  • 4 – Kristín Helga Hákonardóttir (200 m skrið, 4×200 m skrið, 4×100 m fjór, 4×100 m skrið)
  • 4 – Steingerður Hauksdóttir (50+100 m bak, 4×100 m skrið, 4×100 m fjór)
  • 3 – Birnir Freyr Hálfdánarsson (200 m fjór+100 m flug + 4×200 m skrið)
  • 3 – Kolbeinn Hrafnkelsson (50 m bak + 4×100 m fjór + 4×100 m skrið)
  • 2 – Bergur Fáfnir Bjarnason (200 m bak + 4×200 m skrið)
  • 2 – Snorri Dagur Einarsson (50 m + 100 m bringa)
  • 2 – Dadó Fenrir Jasminuson (4×100 m skrið, 4×100 m fjór)
  • 2 – Daði Björnsson (4×100 m skrið, 4×100 m fjór)
  • 1 – Björn Yngvi Guðmundsson (4×200 m skrið)
  • 1 – Katja Lilja Andriysdóttir (4×200 m skrið)
  • 1 – María Skorastein Sigurðardóttir (4×200 m skrið)
  • 1 – Birgitta Ingólfsdóttir (4×200 m skrið)
  • 1 – Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir (4×100 m fjór)
  • 3 – Karlasveit: (4×200 m skrið, 4×100 m skrið, 4×100 m fjór)
  • 3 – Kvennasveit: (4×200 m skrið, 4×100 m skrið, 4×100 m fjór)
Kristín Helga Hákonardóttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Steingerður Hauksdóttir

Sundfólk sem vann silfur og brons og keppti í úrslitum:

Katja Lilja Andriysdóttir, Bergur Fáfnir Bjarnason, Daði Björnsson, Snorri Dagur, Birnir Freyr Hálfdánarsson, Steingerður Hauksdóttir, Birgitta Ingólfsdóttir, Dadó Fenrir Jasminuson, Aron Bjarki Pétursson, Veigar Hrafn Sigþórsson, Hólmar Grétarsson, Kristín Helga Hákonardóttir, Róbert Ísak Jónsson, Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir, Bartosz Henke, Björn Yngvi Guðmundsson, María Skorastein Sigurðardóttir, Adele Alexandra Pálsson, Dagbjörg Hlíf Ólafsdóttir, Þorgerður Ósk Jónsdóttir

Sundfólk sem náði einnig góðum árangri í úrslitum (1.-8. sæti):

Kristín Ylfa Guðmundsdóttir, Diljá Dröfn Jóhannesdóttir, Hilmir Snær L. Rúnarsson, Jónas Atli Pálsson, Karl Björnsson, Magnús Víðir Jónsson, Andri Már Kristjánsson, Arnar Logi Ægisson, Auguste Balciunaite, Dagur Snær Hilmarsson, Daníel Lúkas Tómasson, Karl Björnsson, Halldór Ingi Hafþórsson

Sundfólk sem syndi boðsund og setti ný Íslandsmet:

Þrjú piltarmet

4×200 m skriðsund piltar (Veigar Hrafn, Bergur Fáfnir, Birnir Freyr, Björn Yngvi)

4×100 m fjórsund piltar (Bergur Fáfnir, Snorri Dagur, Birnir Freyr, Veigar Hrafn)

4×100 m skriðsund piltar (Björn Yngvi, Bergur Fáfnir, Veigar Hrafn, Birnir Freyr)

Eitt drengjamet

4×200 m skriðsund drengja (Hólmar, Karl Björnsson, Magnús Víðir, Halldór Ingi)

Veigar Hrafn og Diljá Dröfn kepptu flesta metra á ÍM. Diljá synti 3.900 m í undanrásum sínum og úrslitum 400 m skrið og 400 m fjór sem og 800 og 1500 m skrið. Veigar synti enn meira og syndi samtals 4.300 m samtals í keppni!

Þetta sundfólk komst á alþjóðleg meistaramót í sumar:

  • Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (EM)
  • Anton Sveinn McKee (EM) – keppti ekki á ÍM
  • Símon Elías Statkevicius (EM)
  • Snorri Dagur Einarsson (EMU)
  • Daði Björnsson (EMU)
  • Birnir Freyr Hálfdánarsson (EMU, EYOF, NÆM)
  • Bergur Fáfnir Bjarnason (NÆM)

Þetta sundfólk komst í landsliðið og mun keppa á Allþjóðamótinu í maí:

  • Björn Yngvi Guðmundsson
  • Hólmar Grétarsson
  • Magnús Víðir Jónsson
  • Katja Lilja Andriysdóttir
  • Kristín Helga Hákonardóttir
  • Steingerður Hauksdóttir
  • Veigar Hrafn Sigþórsson

Klaus Jurgen Ohk hjá SH fagnaði þessum árangri síns fólk og vill koma hamingjuóskum til alls sundfólksins fyrir sinn frábæra árangur.

„Við þökkum öllum dómurum og starfsmenn, sem tryggðu sanngjarna keppni – þið eigið öll stóran hluta af þessum árangri. Kærar þakkir,“ segir Klaus ánægður með mótið.

Alþjóðleg mót sem SH-ingar keppa á

EM – Evrópumeistaramót – Róm, Ítalía – 11.-17.08.2022

EMU – Evrópumeistaramót Unglinga – Bukarest, Rúmeníu – 5.-10.07.2022

EYOF – European Youth Olympic Festival – Banská Bystrica, Slóvakía – 24.-30.07.2022

NÆM – Norðurlandameistaramót Æskunnar – Eistlandi – 9./10.07.2022

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2